<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, febrúar 10, 2010

Ja hérna, er þetta ennþá til.
En gaman að koma og skrifa nokkra punkta. Ég geri ráð fyrir að allir lesendur séu farnir :)
En bara til gamans, þá er annað barn á leiðinni, jújú, annar strákur 12.júni :)
Svo er HA hittingur á næstunni og allir ætla að mæta með börnin sín, það verður gaman að hitta gamla HA-inga.
Annars er lífið bara stuð :)

kv Gústi :)

miðvikudagur, október 08, 2008

Kæru vinir.
Það er bara allt orðið vitlaust í þjóðfélaginu, svei mer þá.
Það er bara vonandi að þetta ástand lagist á næstu dögum og vikum.

En það er langt síðan eg skrifaði síðast. Um miðan águst fórum við til Akureyrar. Við vorum hja félaga mínum í Fnjóskadal í nokkra daga og svo var haldið á Blönduós þar sem bróðir minn var að gifta sig. Ég tók að mer veislustjórn. Þetta var flott kvöld.
Í lok ágúst fór eg sem fararstjóri í formúluferð til Valencia. Við gistum á 5* hoteli í Alicante en tókum rútu á milli til Valencia á formúluna. Það tóku nokkrir með ser golfsettin og spiluðu nokkra golfhringi, þarna er flott spa og auðvitað fór maður í eitt gott nudd. Veðrið var mjög gott, góður hópur, semsagt skemmtileg ferð. Það er bókað að maður fer aftur í þessa ferð á næsta ári. Ef þið viljið koma með mer þá endilega látið mig vita.

Áki Valur hefur aldeilis stækkað.Við erum 2x í viku í ungbarnasundu sem er mjög gaman. Um daginn þá fór hann öska aðeins, ekki af ónægju, heldur öskrar hann stundum bara, en þá fóru flest börnin að gráta í sundinu. Sem betur fer var tíminn að verða búinn.
En annars er hann alltaf kátur, brosandi og hlær mikið. Hann hlær svo mikið að maður heldur að eitthvað se að barninu :) Hann er buinn að fá fyrsta grautinn sinn og borðar hann þetta með bestu lyst.

Annars er allt gott að frétta, íbúðin mín er ennþá til sölu en er með góða leigendur. Vantar einhverjum góða íbúð?? :)

Gott í bili, munið gestabókina :)

Kv Gústi :)

laugardagur, ágúst 02, 2008

Hæhæ kæru vinir.
Rosalega er maður lélegur að skrifa hérna inn. Kannski er ekkert að gerast hja manni, greinilega meira að gerast þegar háskólatímabilið var að ganga yfir. Ju fyrir utan káta strákinn minn. Hann bara dafnar og dafnar, þyngist og stækkar, brosir og hlær, er algjör skemmtikraftur og party ljón :) ......þetta er sko minn maður :)
Vinnu tengt þá fór eg í 3 daga ferð til UK, var eina nótt í Manchester og aðra í Liverpool. Tilgangur ferðarinnar var hótelskoðun. Eg nota mikið hótel á þessum stöðum og það er mikilvægt að maður þekki til hótela. Einnig er gott að koma á staði til að taka myndir, skoða veitingastaði og fótboltavelli eins og í mínu tilfelli. Þessi ferð var nu hraðferð en samt sem áður mjög gaman.
Í þessum mánuði fer eg til Valencia sem fararstjóri í formúluferð en við gistum á 5* golfhóteli í Alicante. Þeir sem hafa áhuga á golfi og horfa á formúluna ættu að skella ser með, það eru nokkrir miðar eftir. Og svo má nátturulega ekki gleyma sólinni og allri gleðinni sem þvi fylgir, þetta verður bara gaman. :)

En fyrst að maður er með litlar fréttir af sjálfum sér, á maður þá að fara skrifa um mál þjóðfélagsins?? veit ekki hvort eg er að fara nenna þvi. En mig langar samt að segja eitt um fyrrverandi þjálfara ÍA. Ég held að hann ætti að fara gera eitthvað annað og að fréttamenn á þessu landi ættu að hætta að tala við hann. Hann bara útúðar öllu og öllum, hver nennir að hlusta á svona menn? Kallinn er útbrunninn, svektur og kjaftfor. Hann er ekki góð fyrirmynd í íslenskum íþóttum, hvoki til annara þjálfara, dómara, knattspyrnumanna eða yngri knattspyrnustráka sem eru að feta sig áfram í þessari íþrótt, enda er hann ekki háttskrifaður hja þjóðinni sem fylgist með íþróttum. Jæja, hvernig var þetta? var þetta ekki fín umræða? þið kannski leggið inn ykkar álit í gestabókina þótt að þið hafið ekki hugmynd um hvað eg er að tala....... er nokkur skyldur honum sem kemur her inn?? :)

En þetta er orðið gott í bili, aldrei að vita ef maður skrifi meira um mál þjóðfélagsins, þau eru nú flest ekkert skemmtileg en það gerist stundum :)

Munið gestabókina.
Kv Gústi :)

mánudagur, júní 30, 2008

HÆHÆ
Prinsinn okkar var skírður þann 28.júní og fékk nafnið Áki Valur. Hann var rosalega góður og rólegur á meðan athöfnin var og svo sofnaði hann í lokin. Skírnin var í fríkirkjunni í Hafnafirði.
Mamma mín hélt á honum undir skírn, en hún átti afmæli þennan dag. Ekki nóg með það, vinkona okkar sem kom okkur saman, hún eignaðist stelpu þennan dag, þannig að þessi dagur var mjög stór og flottur :)

Annars er allt mjög gott að frétta. Ég hef verið í fríi í júní en byrja aftur að vinna 1.júli. Það eru mörg verkefni sem bíða mín. Fótbolta listinn er kominn út þannig að eg þarf að fara setja upp um 100 leiki ásamt flutt af öðrum ferðum sem eg er að koma af stað, koma með nýjungar í ferðum fyrir Íslendinga. Þið verðið að fylgjast með á http://www.expressferdir.is/ Þetta verður skemmtilegt fyrir mótorsport áhugamenn og konur.

Bið að heilsa í bili. Munið gestabókina :)
Kv Gústi :)

þriðjudagur, júní 24, 2008

Sælt verið fólkið.
Hvað er títt?? Sumarið er heldur betur byrjað, frábært veður síðstu daga.
Ég hef verið í fríi í júni mánuði, 2 vikur í orlof og 2 vikur í sumarfríi. Veðrið hefur bara leikið við mann.
Annars braggst drengurinn vel. Það hefur verið gaman að fylgjast með honum í þessum mánuði, hefði ekki viljað missa af þessum tíma. Við ætlum að skíra á laugardaginn í Hafnafirði og nátturulega liggur mikil leynd yfir þessu :)
Íbúðin mín er ennþá til sölu, ef einhver í svoleiðins hugleiðingum þá endilega látið mig vita.

Annars er allt gott, dagarnir bara líða svo hratt en samt skemmtilegir, þrátt fyrir miklar bleyju skiptingar :)



Ég sá þennan texta á netinu á einni heimasíðu. Þetta er um Sigur Rós, mjög skemmtlegt hvernig þeir enda textan :)

"ICELANDIC GOBBLEDIGOOK Remember that insanely beautiful girl you once saw at a festival? The one you wanted to lick mud off? Yeah. Well she loves this band. Icelandic fourpiece Sigur Rós are part dream-pop Elysium, part sodding earache (depending on your mood), but if you can learn the Icelandic for With A Buzz In Our Ears We Play Endlessly, you stand a good chance of one day getting laid in a cold country."

Bið að heilsa í bili. Munið gestabókina :)

Kv Gústi :)

mánudagur, apríl 28, 2008

HÆHÆ
Jæja, loksins er strákurinn kominn í heiminn, og ekkert smá flottur strákur :)
Við fórum á fæðingardeildina kl.8.00 laugardagsmorgun og strákurinn fæddist kl.18.07, 52.5 cm og rúmar 14 merkur.
Allt gekk vel og öllum heilsast mjög vel.
Ég setti inn nokkrar myndir inn á "GUS myndir" linkinn vinstra megin.
KV Gústi stolti :)

fimmtudagur, apríl 17, 2008

ÍBÚÐ TIL SÖLU http://www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=299875

Annars styttist í fæðingu, eg læt vita :)

kv Gústi.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?